Ingibjörg Zophoníasdóttir Við kveðjum nú Ingibjörgu á Hala sem vantaði aðeins nokkra mánuði í 100 árin og hélt andlegum og líkamlegum kröftum fram undir það síðasta. Eiginmaðurinn Torfi var átta árum eldri og kvaddi okkur í byrjun þessarar aldar 2001 eftir ötult lífsstarf sem skólastjóri í Suðursveit og bóndi á Hala. Saman eignuðust þau Ingibjörg 9 börn sem upp komust og mörg hver setja nú svip á byggðarlagið sunnan Vatnajökuls ásamt fjölda afkomenda. Verkefni Ingibjargar var ærið við uppeldi barnahópsins, en hún fylgdist jafnframt með bústörfum og miðlaði ómetanlegum sýnishornum af þeim með myndum sem hún tók, m.a. af útræði frá Bjarnarhöfn. Þau Torfi og fjölskylda urðu með félögum á Höfn stoð og stytta í starfi Alþýðubandalagsins sem stofnaði félag í Austur-Skaftafellssýslu á árunum 1967–68. Síðar tók við tengdadóttirin Þorbjörg sem við mörg vildum sjá sem fulltrúa á Alþingi. Hún tók hins vegar við skólastjórn af tengdaföður sínum og fór síðar ásamt Fjölni Torfasyni fyrir stofnun Þórbergsseturs á Hala upp úr aldamótum. Í starfi þess menningarseturs sá Ingibjörg og afkomendur stóra drauma rætast. Þar mætti hún staðfestlega á viðburði uns skömmu fyrir andlátið. Við þökkum Ingibjörgu lífsstarfið sem borið hefur ríkulegan ávöxt. Kristín og Hjörleifur Guttormsson |